logo

Fréttir 2011
Skattmat Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Miðvikudagur, 08 Febrúar 2012 15:48

Skattmat 2012 - Varðandi líkamsræktarstyrki

Styrktarsjóður BSRB vill benda á að í skattmati 2012, orðsendingu Ríkisskattstjóra nr. 2/2012, kemur fram:

2.9 Íþróttaiðkun

Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda , eða eftir atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við íþróttaiðkunn að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 40.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikninga fyrir greiðslu á viðkomandi kostnaði. Með kostnaði við íþróttaiðkun er átt við greiðslu á aðgangi að líkamsræktarstöðvum, sundlaugum og skíðasvæðum, greiðslu á æfingagjöldum í íþróttasali og félagsgjöldum í golfklúbba sem og hreyfingar sem stunduð er með reglubundnum hætti.

LAST_UPDATED2
 
Eingreiðsla í febrúar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Mánudagur, 30 Janúar 2012 15:46

Eingreiðsla til félagsmanna SDS

Grein 1.2.2.

 Starfsmenn sem eru við störf þann 1.febrúar 2012 fá greidda sérstaka eingreiðslu, kr. 25.000,- miðað við fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1.febrúar 2012

 
16.01.2012 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Mánudagur, 16 Janúar 2012 13:14

BSRB, KÍ og BHM vara við tilfærslu á málefnum atvinnuleitenda

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRBStjórnvöld undirbúa nú tilraunaverkefni sem felur í sér að stéttarfélög taka að sér hluta af þjónustu atvinnuleitenda. BSRB, KÍ og BHM vara eindregið við því að þessi leið verði farin og óttast að fyrirkomulagið verði til að skerða bolmagn Vinnumálastofnunar til að sinna starfi sínu.

„Við teljum að þarna verði mismunun á milli stéttarfélaga um þjónustu við atvinnuleitendur.Við viljum að þjónusta við atvinnuleitendur sé hluti af velferðarkerfinu og það sé haldið utan um það á einum og sama stað, einu og sama borði,“ segir Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB.

Elín segir jafnframt að með þessu sé verið að dreifa þekkingu, kunnáttu og fjármunum.Slíkt hafi óhjákvæmilega áhrif á starfsemi Vinnumálastofnunar.

„Það er þá verið er að skerða þá þjónustu sem þar er fyrir, og við teljum þvert á móti að það skipti máli eins og staðan er í dag að efla frekar starf Vinnumálastofnunar en hitt,“ segir Elín enda atvinnuleysi í hámarki.

BSRB, KÍ og BHM leggjast því alfarið gegn því að atvinnuleitendur verði flokkaðir á grundvelli félagsaðildar í stéttarfélög þegar kemur að þjónustu til atvinnulausra. Það er jafnframt skoðun samtakanna að málefni atvinnuleitenda séu opinbert velferðarverkefni þar sem gæta þurfi jafnræðis og því sé farsælast að opinber aðili hafi yfirumsjón með því.

LAST_UPDATED2
 
45,800,- á manninn í draumafríið. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 11 Janúar 2012 14:18

Tekist hefur að framlengja til 1. febrúar samningi við Heimsferðir um fast verð 45,800,- á mannin fram og til baka til Alicante, þannig að félagsmenn hafa ennþá svigrúm til að bóka á lægsta verðinu sem í boði er meðan farsæti eru til.   Borið hefur á að fólk miskilji hvaða vikur eru lausar þegar skoðað er inn á vefinn tilspanar.is og telur að það sem er merkt blátt sé leigt, en við viljum ýtreka að það sem er merkt blátt er frátekið fyrir S.D.S og verður úthlutað til félagsmanna, þær vikur sem eru í boði eru : 25/4 – 8/5.    8/5-22/5.   22/5 – 6/6.   30/6.3/7 – 17/7.   17/7 – 31/7.   31/7 – 14/8.   14/8 – 28/8.  28/8 – 11/9. Við viljum einnig benda lífeyrisþegum sem greiddu í S.D.S að þeir eiga rétt á sama afslætti og félagsmenn.  Eins og um gat í frétt hér fyrr á síðunni mun starfsmaður okkar sem sér um orlofshúsið afhenda leigutaka lykla og fara yfir með þeim það helsta sem fólk þarf að vita eins og öryggiskerfi, loftkælingu, internet og annað. Algengt er að fólk taki bílaleigubíl og getur leigutaki fengið afslátt í gegnum leigusala en orlofsnefnd aðstoðar við bókanir óski leigutaki eftir því.  Gjaldið sem leigutaki greiðir fyrir þrif við brottför eru 70 evrur og inn í því er þvottur á einum umgangi af rúmfatnaði og handklæðum. Þvottavél er til staðar en ef leigutaki vill ekki standa í þvotti  meðan á dvölini stendur þá getur umsjónamaður tekið það að sér fyrir 3 evrur pr,persónu. Umsjónaraðili húsins tekur að sér að ná í fólk á flugvölinn og fyrir það er greitt 50 evrur miðað við 4 farþega og 10 evrur fyrir hvern farþega umfram það , fullur bíll tekur 6 manns og hámarksgjald er því 70 evrur. Eins er umsjónamaður tilbúinn að snattast með fólk gegn vægu gjaldi t.d stuttar ferðir á markaði eða á veitingastaði 15 evrur miðað við allt að tvo tíma. 

                                                      Minnum á vetrarleiguna á húsunum okkar í Munaðarnesi og í Húsafelli 

                                                                                 Orlofsnefnd 

LAST_UPDATED2
 
Frá orlofsnefnd Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Fimmtudagur, 05 Janúar 2012 09:51

Umsóknareyðublað fyrir sumarhús á Spáni er nú komið inn á vefin. Þið finnið allar upplýsingar undir orlofsmál hægramegin á S.D.S vefnum. Nauðsynlegt er að sækja sem fyrst um til þess að tryggja sem lægsta fargjald, eins geta vinsælustu  dagsetningarnar selst upp, þannig að við hvetjum félagsmenn til þess að sækja um sem fyrst.  Félagsmenn fá leigt fyrir 30,000- vikuna og við brottför er greitt fyrir þrif,algengast er að fólk leigi hálfan mánuð. Staðfesta þarf leigu með 10,000-kr  greiðslu við úthlutun en eftirstöðvar eru greiddir mánuði fyrir brottför leigjandi fær þá möppu með öllum þeim upplýsingum sem hann þarf og gætu nýttst honum í ferðinni. Félagið er með starfsmann sem hefur umsjón með húsinu á Spáni, þrífur og aðstoðar ef eitthvað kemur uppá, sækir á flugvöllin, býður upp á ferðir ef leigjandi óskar þess fyrir sangjarnt verð..  Orlofsnefnd getur aðstoðað við bókanir á flugi  ef  félagsmenn óska þess. Á næstu dögum verður hægt að fá nánari upplýsingar hér á vefnum. Á vefnum tilspanar.is er allt sem er blátt frátekið fyrir SDS sem síðan úthlutar.

Eftirfarandi vikur eru í boði:

 25/4 – 8/5.    8/5-22/5.   22/5 – 6/6.   30/6.3/7 – 17/7.   17/7 – 31/7.   31/7 – 14/8.   14/8 – 28/8.  28/8 – 11/9.  

Ekki er komin flugáætlun fyrir haustið og veturinn en frá sept og til áramóta geta félagsmenn sótt um leigu. Haustin eru af mörgum talin besti tíminn og margir gætu hugsað sér að vera á Spáni um jólin.

Orlofsnefnd

LAST_UPDATED2
 
« FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta »

Síða 1 af 16