logo

24.maí 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Mánudagur, 24 Maí 2010 18:09

Formlegar sameiningarviðræður framundan hjá SDS, FOSS og STH 

Stjórnir Starfsmannafélags Hafnafjarðar , Félags Opinberra Starfsmanna á Suðurlandi og Starfmannafélag Dala- og Snæfellssýslu funduðu á fimmtudaginn var í Hafnarfirði og ákváðu að fara í formlegar viðræður með það að markmiði að sameina félögin. Var formönnum félaganna veitt fullt umboð til að fara í skipulagða undirbúningsvinnu að sameiningu félaganna. Félagsmenn munu fá að taka þátt í þessari hugmyndavinnu eins og kostur er og viljum við gjarnan fá að heyra ykkar skoðanir. Ekkert verður svo endanlega ákveðið fyrr en á aðalfundum félaganna.
Í  yfirlýsingu  stjórna STH, FOSS og SDS sem gerð var á fundinum  standa þessi orð:

Það er trú okkar að með sameiningu þessara félaga sé stigið mikið heilla spor fyrir félagsmenn félaganna.

LAST_UPDATED2