logo

23.ágúst 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Mánudagur, 23 Ágúst 2010 14:08

Trúnaðarmannanámskeið í Grundarfirði

Félagsmálaskóli alþýðu stendur fyrir námskeiðinu Lestur launaseðla og launaútreikningar hjá Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellssýslu. Það er fyrst og fremst ætlað trúnaðarmönnum og fá þeir þjálfun í að lesa úr launaseðlum, þekkja helstu reiknitölur, reglur um launaseðla og fleira.

Það fer fram 23. september frá 10 til 17. Áhugasömum er bent á að skrá sig hjá Helgu Hafsteinsdóttur formanni SDS, en það er einnig opið öðrum félögum innan BSRB.

LAST_UPDATED2