
| Gegn einelti |
|
|
|
| Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir |
| Þriðjudagur, 08 Nóvember 2011 13:59 |
|
Tilgangurinn með fræðslu BSRB um einelti á vinnustöðum hefur m.a. verið að veita trúnaðarmönnum mikilvægar upplýsingar sem þeir eiga svo að skila áfram á vinnustaði sína. Til dæmis að atvinnurekendum ber skylda til að gera áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem felur í sér almennt áhættumat og áætlun um forvarnir samkvæmt XI. kafla laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Samkvæmt lögunum skal meta áhættu aðstæðna vinnuumhverfisins sem geta leitt til eineltis. Í samræmi við niðurstöður áhættumatsins skal grípa til viðeigandi ráðstafana til að draga úr eða koma í veg fyrir að slíkar aðstæður komi upp á vinnustaðnum. Þær efnahagsaðstæður sem við búum við í dag gera slíkt mat ekki síst nauðsynlegt þar sem einelti á sér fremur stað þar sem erfiðleikar eða breytingar herja á vinnustaði. Staðreyndin er hins vegar sú að einelti þrífst síður þar sem viðhöfð eru góð og jákvæð samskipti. Ávinningur vinnuveitenda af jákvæðum samskiptum er mikill enda laðar hann þannig að hæft starfsfólk og eftirsóknarvert verður að vinna þar. Til að svo megi vera verður atvinnurekandi m.a. að tryggja að upplýsingaflæði á vinnustaðnum sé skilvirkt og haft sé samráð við starfsmenn um mál er þá varðar. Einnig að stuðlað sé að því að meðal starfsmanna ríki gagnkvæmt traust, trúnaður og góð samskipti. Þeim markmiðum má ná fram í starfsmannastefnu, jafnréttisáætlun og góðum stjórnunarháttum. Gott starfsumhverfi dregur úr álagi og streitu og eykur almenna starfsánægju. Það hefur ekki eingöngu áhrif á líðan starfsmannsins því það hefur einnig jákvæð áhrif á störf þeirra, t.a.m. gæði þeirrar þjónustu sem er veitt. Afleiðingar eineltis og kynferðislegrar áreitni á vinnustað er ekki eingöngu slæm fyrir þolendur því áhrifanna gætir einnig í rekstri fyrirtækja og getur valdið fjárhagslegu tjóni vegna breyttrar frammstöðu starfsmanns og fjarvista. Það er því hagur allra að uppræta einelti á vinnustöðum sem og annars staðar í samfélaginu. Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti. Sáttmálinn verður einnig aðgengilegur á sérstökum vef eftir undirritunina og þá mun almenningi gefast tækifæri til að skrifa undir hann á vefnum. Slóðin er http://www.gegneinelti.is/ og hvetur BSRB alla félagsmenn sína til að kynna sér átakið og skrifa undir sáttmálann. Málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti. |
| LAST_UPDATED2 |
Tenglar




Dagur gegn einelti er í fyrsta sinn haldinn í dag 8. nóvember. Ekki verður of oft kveðið á um hve mikilvægt er að öllum líði vel á vinnustað sínum og þar sé góður starfsandi, samskipti jákvæð og starfsumhverfi gott. BSRB hefur staðið fyrir öflugri fræðslu til handa trúnaðarmönnum til fjölda ára um aðgerðir og viðbrögð við einelti á vinnustað og á þessum degi er tilvalið að minna á það sem þar kemur fram.