logo

14.11.2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Mánudagur, 14 Nóvember 2011 13:48

Starfsmennt minnir á sig

StarfsmenntÞað er alltaf nóg um að vera hjá Starfsmennt og nokkur fjöldi námsskeiða fer af stað nú í nóvember. Einnig styttist í næstu lotu Forystufræðslu BSRB en frekari upplýsingar um þau námsskeið sem boðið verður upp á næstu vikurnar má finna í nýjasta fréttabréfi Starfsmenntar.

Þau námsskeið sem í boði verða á vorönn eru svo öll að verða tilbúin og upplýsingar um þau birtast jafn óðum á vef Starfsmenntar. Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni og jafnframt er minnt á að allt nám og þjónusta setursins er félagsmönnum aðildarfélaga Starfsmenntar að kostnaðarlausu og oft opið öðrum gegn gjaldi. Þá minnir Starfsmennt einnig á að starfsemin er komin í nýtt húsnæði að Ofanleiti 2, 5. hæð og hefur Starfsmennt einnig fengið nýtt símanúmer sem er 550-0060.

LAST_UPDATED2