logo

25.11.2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Föstudagur, 25 Nóvember 2011 15:00

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum

Frá Ljósgöngunni 2010Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hófst formlega í dag með Ljósagöngum og morgunverðarfundi UN Women. Sextán daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er nú haldið í áttunda sinn á Íslandi en megið markmið þess er að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot.

Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt átakið til að vekja athygli á afleiðingum kynbundins ofbeldis og krefjast aðstoðar og stuðnings fyrir brotaþola. Dagsetning átaksins var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi. 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis.

Dagskrá átaksins í ár er fjölbreytt og samanstendur af Ljósagöngum, bíósýningum, bókaupplestrum og málstofum. Við hvetjum alla til að kynna sér dagskrána nánar hér og á Facebook.

LAST_UPDATED2