logo

Nýr valmöguleiki í fríið Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Helga Hafsteinsdóttir   
Föstudagur, 30 Desember 2011 17:56

Orlofsnefnd og stjórn S.D.S hafa gengið frá leigu á orlofshúsi á Spáni. Er það gert vegna fjölda áskoranna um að auka valmöguleika félagsmanna . Húsið sem leigt var er í raðhúsi   rétt utanvið Torrevieja í Orihuela Costa.  Húsið er vel búið að öllu leiti, sundlaugargarður beint fyrir framan húsið,  afgirtur einungis  fyrir húsin í garðinum. Svæðið er mjög barnvænt og hentar fjölskyldunni afar vel, stutt á ströndina og í alla þjónustu. Þið getið skoðað húsið og það helsta um húsið og svæðið á vefsíðunn www.tilspanar.is  Orlofsnefnd er þessa dagana að ganga frá umsóknarblöðum og nánari upplýsingum og er ætluninn að koma þeim til félagsmanna  strax í byrjun janúar,  svo þeir geti fengið ferðir á sem hagstæðustu  verðum en hægt er að bóka  í  gegnum félagið á ódýrari máta en almennt er í boði. Heimsferðir bjóða ódýrar ferðir til Alicante og hefur orlofsnefnd gengið frá samkomulagi um að  félagsmenn sem bóka fyrir 15 janúar fái ferðina á manninn á 45,800,-  orlofsnefnd og leigusali aðstoða  félagsmenn við bókanir.  Félagið greiðir leiguverð niður til að auðvelda félagsmönnum að komast í draumafríið og verður vikan á 30,000,- .  Þessi kostur er góð viðbót við bústaðina okkar í Húsafelli og í Munaðarnesi og ætti að auðvelda félagsmönnum að komast í sólina á hagstæðu verði.  

Óska félagsmönnum gleðilegs árs .

Formaður orlofsnefndar.

LAST_UPDATED2