logo

SDS - Fréttir frá 2005
Ágætu félagar! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 26 Október 2005 00:00

Á s.l. fundi orlofsnefndar SDS var samþykkt að niðurgreiða hótelmiða í Reykjavík fyrir félagsmenn SDS.  Þannig teljum við okkur koma til móts við þá ósk um félagsíbúð í Reykjavík.

 

Við náðum góðum samningi við Hótel Reykjavík og hér  eru allar helstu upplýsingar:

    Herbergin sem leigð verða eru tveggja manna. Nóttin kostar þá fyrir félagsmann kr. 5.200.

    Þetta gildir einungis  yfir vetrartímann frá nóvember til apríl loka.

    Félagsmönnum ber að sjá um að panta herbergi sjálfir og afhenda miðann frá SDS þegar þeir greiða fyrir herbergið á hótelinu.

 

Orlofsnefnd ætlar að hafa úthlutunarreglunar á þessa leið:

Félagsmaður skal snúa sér til síns orlofsnefndarmanns á sínu svæði með a.m.k. viku fyrirvara.

Hann hefur svo samband við formann orlofsnefndar sem kemur til með að hafa yfirumsjón með pöntunum. Formaður sendir miðana til nefndarmanns sem afhendir þá gegn greiðslu.

Orlofsnefnd ætlar ekki að hafa nein kvóta á þessu, heldur sjá til hvernig þetta þróast hjá okkur. Niðurgreiddir hótelmiðar koma ekki til með að hafa áhrif á sumarbústaðarétt félagana.

Ef einhverjar spurningar vakna þá hafið endilega samband við aðila orlofsnefndar þíns svæðis eða formann orlofsnefndar: 

 

Hellissandi:

Ásta Dóra Valgeirsdóttir, formaður orlofsnefndar

Hs.436-6868

Vs.433-6900

 

Ólafsvík:                              Búðardal:              

Svanhildur Pálsdóttir             Jófríður Anna Eyjólfsdóttir        

Hs.436-1325                          Hs.434-1296

Vs.436-1000                          Vs.434-1230

 

Grundarfirði:                         Stykkishólmur:

Dóra Aðalsteinsdóttir              Bogi Th.Bragason

Hs.438-6855                            Hs.438-1330

Vs.438-6645                            Vs.438-1233

 

 
Orlofshús Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 18 Október 2005 00:00

18.10.2005

Helgarleigan í Munaðarnesi og Stóru Skógum er 9.500 kr. fyrir stór hús og 7.500 kr. fyrir lítil hús. Vikuleigan á Eiðum er 10.400 kr. og helgarleigan 8.000 kr. Öll húsin í Munaðarnesi og Stóru Skógum eru með heitum pottum. Hægt er að panta húsin á skrifstofu BSRB. Síminn á skrifstofu BSRB er 5258300. Netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  Nánari upplýsingar á orlofshúsavef BSRB.

 
Styrktarsjóður BSRB Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 16 Október 2005 00:00

Félögar í SDS eru minntir á styrktarsjóð BSRB sem við eigum rétt til að sækja í skv. reglum sjóðsins. Úthlutunarreglur og umsóknareyðublað vegna umsókna í sjóðinn er að finna á heimasíðu Styrktrarsjóðs BSRB. Meðal annars er hægt að sækja um styrk vegna sjúkraþjálfunar, nudds, heilsuræktar, ferða til lækna o.fl.

 
Konur í SDS athugið. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 03 Október 2005 00:00

Þessa dagana stendur yfir krabbameinsskoðun á heilsugæslustöðvum á starfssvæði SDS.

Stjórn SDS hefur gengið þannig frá málum við heilsugæslustöðvarnar að listi með nöfnum félagsmanna hefur verið sendur til stöðvanna og þurfa konur sem hafa verið félagsmenn í SDS í 3 mánuði eða lengur, eingöngu að gefa upp í viðkomandi afgreiðslu að þær séu félagsmenn í SDS og þá verður merkt við þær á listanum. Krabbameinsfélagið sér svo um að senda reikning á Fjölskyldu- og styrktarsjóð BSRB sem greiðir skoðunina.

Ef ske kynni að nöfn einhverra vanti á lista þá er viðkomandi bent á að sækja sjálfur um endurgreiðslu til Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BSRB en við vonum nú að listarnir séu réttir.

 
Aðalfundur 1. okt Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 28 September 2005 00:00

47 félagsmenn hafa tilkynnt komu sína á aðalfundinn nk. laugardag 1. október. Stjórn SDS fundar í dag í húsnæði félagsins í Grundarfirði á dagskrá er m.a. að vinna að lokaundirbúningi fyrir fundinn á laugardaginn. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að lagfæringum á heimasíðu félagsins og mun sú vinna halda áfram á næstunni. Ef þið félagsmenn góðir hafið ábendingar um eitthvað sem ykkur finnst að vanti eða þurfi að bæta hér á síðunni þá megið þið senda póst beint á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hið besta verður gert til að vinna úr ábendingum ykkar.

 

 
« FyrstaFyrri12NæstaSíðasta »

Síða 1 af 2