|
Föstudagur, 02 Maí 2008 00:00 |
Tilkynning frá orlofsnefnd Orlofsnefnd kom saman þann 22. apríl sl. til að úthluta sumarbústöðunum okkar fyrir sumarið. Það er skemmst frá því að segja að allt of margar vikur eru enn ónýttar og viljum við hvetja félagsmenn til að nýta sér þessa sælureiti sem við höfum aðgang að á mjög sanngjörnu verði, kr. 13.500 vikan. Þeir ganga að sjálfsögðu fyrir sem ekki hafa fengið úthlutað sl. 3 ár en aðrir eru hvattir til að sækja um líka. Tómur bústaður er engum til gagns. Eftirfarandi vikur eru enn lausar: Húsafell: 16.-23. maí / 23.-30. maí / 6.-13. júní / 13.-20. júní 8. - 15. ágúst / 15.-22. ágúst / 22.-29. ágúst / 5.-12. september Munaðarnes: 16.-23. maí / 23.-30. maí / 6.-13. júní / 13.-20. júní 27. júní-4. júlí / 4.-11. júlí / 18.-25. júlí / 8.-15. ágúst 15.-22. ágúst / 22.-29. ágúst / 29. ágúst-5. september |
|
|
Þriðjudagur, 29 Apríl 2008 00:00 |
|
Laugardaginn 19. apríl sl. útskrifuðust í fyrsta skipti hér á Vesturlandi 23 nemendur frá Grunnmenntaskólanum sem var starfræktur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga af Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Verkefnastjóri var Barbara Fleckinger. Á bak við námið voru 300 kennslustundir og hófst námið þann 8. október sl. Námið samanstóð aðallega af grunnnámi fyrir framhaldsskóla. Margar af félagskonum í SDS voru meðal þeirra sem útskrifuðust og komu þær af öllu Nesinu þó svo að veðurguðirnir hafi alls ekki unnið með þeim í vetur. Ég get, ég vil, ég skal - ég blómstra! var það slagorð sem nemendur bjuggu sjálfir til og gefur okkur góða mynd af þeirra einhug í verki. Stjórn SDS vill nota tækifærið og óska þeim öllum innilega til hamingju með þennan áfanga í þeirra lífi með hvatningarorðum til frekari ávinninga í námi. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
Stjórn BSRB vill hefja viðræður um skammtímasamning |
|
|
|
|
Föstudagur, 04 Apríl 2008 00:00 |
|
BSRB hvetur til þess að þegar í stað hefjist viðræður við fjármálaráðuneytið um skammtímasamning. Þetta kemur fram í ályktun sem BSRB sendi frá sér í dag. Í ályktuninni ítrekar stjórnin mikilvægi þess að kjör innan almannaþjónustunnar verði stórbætt. Svo er komið að mjög víða er þar við alvarlega manneklu að stríða sem rekja má til bágra kjara og er brýnt að taka af alvöru á þeim vanda. |
|
|
Föstudagur, 08 Febrúar 2008 00:00 |
|
Samflotið hefur nýlega uppfært heimasíðu sína en henni er aðallega ætlað að vera upplýsingaveita til félagsmanna fyrir komandi kjarasamningagerð. Þetta var eitt af fyrstu verkum stjórnar til að tryggja gott aðgengi fyrir félagsmenn svo að þeir geti fylgst vel með framgangi samninga. Sjón er sögu ríkari, skoðið því: www.samflot.is |
|
Skrifstofa SDS hefur flutt |
|
|
|
|
Föstudagur, 08 Febrúar 2008 00:00 |
|
Skrifstofa SDS hefur flutt í nýtt leiguhúsnæði sem er til húsa að Borgarbraut 1a í Grundarfirði. Þetta er gamalt og lítið hús í eigu Vinstri Grænna, annað hús til vinstri þegar ekið er af Grundargötu upp Borgarbrautina. Fyrra húsnæði félagsins stórskemmdist þegar þriggja tonna jeppabifreið rann í einu óveðrinu yfir götuna, flaug yfir garðinn og hafnaði á húsinu. Ekki er þó talið að þetta hafi verið atlaga að stéttarfélaginu á neinn hátt, en eftir þetta var húsið opið fyrir vatni og vindum þannig að formanni var ekki vært þar með sína vinnustaðstöðu lengur. Sjá myndir af gamla og nýja húsinu hér |
|
|
|
|
|