Sendum öllum félagsmönnum og fjölskyldum hugheilar óskir um gleðilega hátíð og farsæls komandi árs. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Stjórn SDS |
|
|
Varað við áhrifum hækkunar óbeinna skatta á skuldastöðu heimilanna
Stjórn BSRB gerir sér fulla grein fyrir nauðsyn þess að ríkissjóður afli sér aukinna tekna í gegnum skattkerfið en varar við þeim áhrifum sem boðaðar breytingar á óbeinum sköttum munu hafa á verðlag og þar með skuldastöðu heimilanna. Afar mikilvægt er að skattahækkanir hafi ekki áhrif á neysluverðsvísitöluna. Sjá nánar |
BSRB styrkir Mæðrastyrksnefnd
BSRB ákvað að senda ekki vinum og velunnurum jólakort þetta árið heldur að nýta peningana til góðgerða. Ákveðið var að veita Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur styrk að upphæð 300 þúsund krónur enda vitað að sá styrkur mun nýtast vel þeim sem mest þurfa á að halda nú um hátíðirnar. Sjá nánar |
|
Starfslok verkefnistjórnar 50+ Verkefnisstjórn 50+ hefur skilað af sér skýrslu til félagsmálaráðherra þar sem farið er yfir störf hópsins undanfarin 5 ár. Verkefnisstjórnin var skipuð 7 fulltrúum, sex þeirra voru tilnefndir af aðilum vinnumarkaðar og hinu opinbera þ.e. Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Fjármálaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Vinnumálastofnun en Bandalag starfsmanna ríkisins, Bandalag háskólamanna og Kennarasamband Íslands tilnefndu sameiginlega einn fulltrúa. Formaður var skipaður án tilnefningar.
Sjá nánar |
|
Á hverja hlustar ríkisstjórnin? "Innan verkalýðshreyfingarinnar gerum við okkur vissulega grein fyrir því að nú þegar unnið er að lokafrágangi fjárlaga á Alþingi fyrir komandi ár standa spjótin á stjórnvöldum úr öllum áttum. Margir vilja koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Samtök atvinnulífsins leggjast gegn álögum á stóriðju en hafa hins vegar illu heilli tekið undir með þeim sem tala fyrir því að í staðinn verði ýmsar aðrar álögur hækkaðar, svo sem tryggingagjald og aðrir launaskattar á lágtekju- og millitekjuhópa. Ekki fáum við heldur stuðning úr þeim herbúðum til að verja almannaþjónustuna," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Sjá nánar
|
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 7 |