logo

SDS - Fréttir frá 2006
Trúnaðarmannafundur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 11 Nóvember 2006 00:00

 

8.11.2006


Stjórn S.D.S. boðar til trúnaðarmannafundar miðvikudaginn 15. nóvember 2006 kl. 15.00 á veitingahúsinu Kaffi 59 í Grundarfirði.

Á fundinum verður farið yfir lög trúnaðarmanna, nýjar möppur fyrir trúnaðarmenn verða kynntar og afhentar.

Væntum þess að sem flestir trúnaðarmenn sjái sér fært að mæta.

 

 
Yfirlýsing frá Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellsnessýslu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 13 September 2006 00:00
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu lýsir furðu sinni á orðum bæjarstjóra Snæfellsbæjar í tíufréttum RÚV þann 7. september þar sem hann undrast að stéttarfélagið hafi ekki komið að máli starfsmanna íþróttamannvirkja Snæfellsbæjar.

 

Af því tilefni vill félagið ítreka að SDS hefur haft algjört forræði í þessu máli. SDS sem aðildarfélag innan BSRB hefur á síðustu mánuðum leitað stuðnings BSRB sem hefur síðan hafið undirbúning að málsókn. SDS lýsir fullum stuðningi við félagsmenn sína og lýsir jafnframt yfir vilja sínum til að ljúka málinu í sátt.

 

Ályktun aðalfundar Samflots bæjarstarfsmannafélaga

 

Aðalfundur Samflots bæjarstarfsmannafélaga haldinn í Ólafsvík 8.-9. september 2006 lýsir yfir stuðningi sínum við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu í deilu þeirri er félagið á í við  Snæfellsbæ vegna starfsmanna íþróttamannvirkja.

 

Aðalfundurinn  hvetur stjórnendur Snæfellsbæjar til að endurskoða afstöðu sína og ljúka málinu í sátt.

 
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar stefnt Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 01 Ágúst 2006 00:00

Stjórn BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar vegna uppsagna sex starfsmanna við íþróttahús og sundlaugar Snæfellsbæjar. Að sögn bæjaryfirvalda standa uppsagnirnar í tengslum við skipulagsbreytingar en samkvæmt kjarasamningum eru skýr ákvæði um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að starfsfólki sé sagt upp störfum. BSRB benti bæjaryfirvöldum ítrekað á að uppsagnirnar stæðust ekki lög og kröfðust samtökin þess að þær yrðu dregnar tilbaka. Þegar því var hafnað og starfsfólkinu sagt upp störfum var lögmönnum falið að undirbúa stefnu. Bæjarstjórn var greint frá þessu í bréfi 27. júlí og gefinn fyrirvari til andsvara en engin viðbrögð bárust við því bréfi. Stjórn BSRB hefur því ákveðið að stefna bæjaryfirvöldum í Snæfellsbæ.

Bréfið má sjá hér.

 
1. maí hátíðarhöldin Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 02 Maí 2006 00:00

2.5.2006

Góð þátttaka var á öllum stöðunum í hátíðarhöldum 1. maí. Boðið var upp á ýmis skemmtiatriði í bland við ræður og tónlistarflutning og alls staðar var fjöldi góðra veitinga í boði. Formaður SDS, Helga Hafsteinsdóttir flutti ræðu dagsins í Ólafsvík og Stykkishólmi og má nálgast hana hér.

 

 
aðalfundur 2006 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 24 Mars 2006 00:00

Aðalfundur Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu verður haldinn 8. apríl nk. á Hótel Stykkishólmi og hefst hann kl. 18:00.

Dagskrá:

1. Venjuleg aðalfundarstörf.

2. Önnur mál.

 

Að fundi loknum verður félagsmönnum boðið upp á kvöldverð. Skráning er hjá formanni í síma 436-1077 eftir hádegi eða í fax 436-1078 fyrir 4. apríl nk. Gaman væri ef félagsmenn lumuðu á einhverjum skemmtiatriðum yfir borðhaldi.

Rútuferðir verða frá Dalabyggð, Grundarfjarðarbæ og Snæfellsbæ og verður brottfarartími auglýstur þegar nær dregur.

 

Stjórn S.D.S.

 

 
« FyrstaFyrri1234NæstaSíðasta »

Síða 1 af 4