|
Þriðjudagur, 04 Desember 2007 00:00 |
|
Desemberuppbót árið 2007 er sem hér segir fyrir 100% starf: Starfsmenn sveitarfélaga kr. 61.520.- Ríkisstarfsmenn kr. 45.500.- Þessi upphæð á að koma til útborgunar 1. desember 2007. Nánar í grein 1.7 í kjarasamningi félagsins. |
|
|
Fréttabréf SDS nóvember 2007 |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 04 Desember 2007 00:00 |
|
Nýja fréttabréfið er komið á vefinn og má nálgast það á rafrænu formi hér. Í fréttabréfinu er stiklað á ýmsum atriðum sem snerta starfsemi félagsins á árinu ásamt fróðleiksmolum fyrir félagsmenn. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér auglýsingu um félagsfundi sem haldnir verða á starfssvæði SDS í janúar. Félagsmenn munu fá fréttabréfið sent í pósti á næstu dögum. Þeir sem ekki fá eintak í pósti eru hvattir til að hafa samband við skrifstofu SDS í síma 436-1077 eða með tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
';
document.write( '' );
document.write( addy_text61005 );
document.write( '<\/a>' );
//-->\n Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og þá verður viðkomandi sent eintak um hæl. |
|
Eftirfarandi bréf var sent til sveitar- og bæjarstjórnenda á starfssvæði SDS 23.11.sl.: |
|
|
|
|
Laugardagur, 01 Desember 2007 00:00 |
Ágætu bæjar- og sveitarstjórnarmenn. Eins og ykkur er eflaust kunnugt um þá hafa undanfarið átt sér stað töluverðar kjarabætur hjá starfsmönnum sveitarfélaga innan höfuðborgarsvæðisins og víðar. Starfsmenn sem eru að vinna sömu vinnu og í okkar sveitarfélögum eru nú að fá umtalsverðar launahækkanir og kjarabætur. Ég hef verið að fá margar fyrirspurnir frá félagsmönnum á þá leið hvort ekkert af þessu skili sér til þeirra. Hvort þeirra sveitarfélag ætli ekki að gera það sama við sína starfsmenn og verið er að gera t.d. á Seltjarnarnesi, í Kópavogi, Hafnarfirði og hjá Akureyrarbæ. Ég vil skora á ykkur, ágætu stjórnarmenn, til að skoða þessar aðgerðr og um leið hvetja ykkur til að koma til móts við væntingar ykkar starfsmanna. Með bestu kveðju, Helga Hafsteinsdóttir, formaður SDS |
|
|
Könnun á kjörum félagsmanna BSRB |
|
|
|
|
Föstudagur, 30 Nóvember 2007 00:00 |
|
BSRB ásamt BHM og KÍ standa fyrir sameiginlegri könnun á kjörum félagsmanna sinna. Á næstu dögum mun verða haft samband við úrtak úr hópi félagsmanna og þeir beðnir um að svara könnun á netinu eða fá sendan spurningalista með pósti. Meðal annars er spurt um hagi félagsmanna, menntun, samsetningu launa og önnur hlunnindi. Afar mikilvægt er að sem flestir svari könnuninni til að hún verði sem marktækust og gefi færi á að bera kjör okar saman, bæði milli félaga og við launafólk á almenna markaðnum. |
|
Krabbameinsleit á Snæfellsnesi |
|
|
|
|
Mánudagur, 01 Október 2007 00:00 |
|
Framundan er krabbameinskoðun á starfssvæði SDS og af því tilefni vill stjórn SDS koma því á framfæri til félagsmanna sinna að Styrktarsjóður BSRB veitir styrk til krabbameinsleitar allt að kr. 3.000 einu sinni á ári til sjóðfélaga sem hafa verið félagsmenn í sex mánuði af síðustu tólf mánuðum. Heilsugæslustöðvar á Snæfellsnesi hafa fengið sendan nafnalista með félagsmönnum SDS og óskað hefur verið eftir því að merkt verði við þær konur sem koma til skoðunar og reikningur sendur beint til Styrktarsjóðs BSRB eins og gert var síðast þegar skoðun fór fram á Snæfellsnesi. Ef einhver vandkvæði koma upp þá eru hutaðeigandi vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu SDS í síma 436 1077 eftir kl. 14.00 alla virka daga. Einnig er vert að minna á að greiddur er styrkur fyrir skoðun hjá Hjartavernd allt að kr. 12.600 einu sinni á ári. |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 3 |