
| Orlofsbústaðir |
|
|
|
SDS býður til leigu 2 glæsileg orlofshús fyrir félagsmenn sína. Og orlofshús á Torreveija á Spáni![]() Ásendi 6, HúsafelliBústaðurinn er um 60m² með svefnpláss fyrir 8 manns og samanstendur af forstofu, stofu og borðstofu, baðherbergi, eldhúsi og þremur svefnherbergjum, eitt hjónaherbergi en hin 2 erum með stórum og góðum kojum. Einnig er glæsilegur nýr svefnsófi í stofunni. Sængur og koddar í húsinu, en gestir taka með sér rúmfötin. Lokuð falleg verönd er allt í kringum húsið og heitur pottur. Gasgrill og útihúsgögn eru í geymslu við húsið. Glæsilegur bústaður með öllum þægindum. t.d. örbylgjuofn, hljómtæki, flatskjár, DVD-spilari. Sumarleiga fyrir vikuna er kr. 13.500 kr. Helgarleiga á veturna er kr. 8.500 kr. Stekkjarhóll 64 Húsið sem er um 52m² samanstendur af anddyri, stofu, borðstofu, eldhúsi, 3 svefnherbergjum og baðherbergi. Svefnpláss er fyrir 7-8 manns, þ.e. tvíbreið rúm í 2 svefnherbergjum + ein efri koja og stór svefnsófi í stofunni. Sængur og koddar eru í húsinu. Gestir taka með sér sængurföt og tuskur. Í eldhúsinu er ísskápur, eldavél með ofni, örbylgjuofn borðbúnaður og áhöld fyrir 8 manns. Gasgrill og góð útihúsgögn. Húsbúnaður og fleira er endurnýjað reglulega. Hlýlegur og notalegur bústaður í alla staði á fallegum stað. Sumarleiga fyrir vikuna er kr. 13.500 kr. Helgarleiga á veturna er kr. 8.500 kr.
Spánn- Lomas De Cabo Roig, rétt fyrir utan Torrevieja Um er að ræða nýlegt endaraðhús með gistirými fyrir 6-8 manns , allt innbú er afar vandað í húsinu. Húsnæðið er 102 fermetrar á þremur hæðum en í raun er íbúðin bara á 1. og 2. hæð. Á 3.hæðinni eru sólarsvalir með góðu útsýni yfir svæðið, sést yfir á La Manga skagann. Innbyggð loftkæling og kynding er í húsinu með auðveldu stýrikerfi og er það nánast hljóðlaust (ekki utanáliggjandi kæli blásarar á veggjum eins og er svo oft ). Í stofu er sjónvarp, gervihnatta móttakari með fjölda sjónvarpsrása er til staðar. Einnig er heimabíókerfi með DVD spilara. Stækkanlegt borðstofuborð með 6 stólum er í borðstofu. Sófi sem er í stofu er hægt að nýta sem tvíbreitt rúm. Í eldhúsi er ísskápur , uppþvottavél, þvottavél, kaffivél, brauðrist, safapressa, blandari, pottar , pönnur og öll helstu áhöld til matargerðar, allur borðbúnaður er fyrir 12 manns. Svefnherbergin eru með góðum rúmum, sængur og koddar, barnaferðarúm og barnastóll er til staðar. Stórir skápar eru í herbergjum á annari hæð. Baðherbergin eru tvö, á fyrstu hæðinni er klósett, vaskur og góðir skápar en á annarri hæðinni er baðkar með sturtuaðstöðu, klósett, vaskur og góðir skápar. Öll rúmföt og handklæði eru til staðar, ásamt strandhandklæðum. Lóð húsins er afgirt og hægt er ganga með húsinu í bakgarð ,einnig er útgangur úr eldhúsi í bakgarðinn. Sólbaðsaðstaða og gott rými er til að borða úti bæði á verönd og í bakgarði. Sundlaugargarðurinn er í lokuðum kjarna á milli húsanna og er garðurinn læstur fyrir almenningi , einungis ætlaður þeim sem gista húsin og gesti þeirra. Húsið er vel staðsett, þú horfir út til sundlaugarinnar frá verönd og sérð til beggja innganga inn í garðinn. Húsinu fylgir stórt útigrill, útihúsgögn fyrir 12 til 18 manns og sólbekkir fyrir 6. Securitas öryggiskerfi er í húsinu sem auðvelt er í notkun og ætlast er til þess að leigutakar noti kerfið. |
Tenglar




