logo

Hótel
Hótel Reykjavík við Rauðarárstíg Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Ágætu SDS félagar

Höfum náð góðum samning við Hótel Reykjavík að  Rauðarárstíg 37.

SDS niðurgreiðir að auki fyrir félagsmenn sína!                

Hótel Reykjavík er aðlaðandi og nútímalegt fyrsta flokks hótel í hjarta Reykjavíkur. Þaðan er stutt að ganga hvort sem er í gamla miðbæinn, Kringluna eða Perluna. Einnig er Hlemmur á næsta leiti og þaðan eru strætisvagnaferðir í allar áttir, auk þess sem stutt er að fara á innanlandsflugvöllinn og B.S.Í.

Hótelið býður uppá vinalega og góða þjónustu og rólegt andrúmsloft. Á hótelinu eru 78 þægileg herbergi, þar á meðal svítur og fjölskylduherbergi. Herbergin eru hlýleg, með baði og/eða sturtu, minibar, síma, gervihnattasjónvarpi, útvarpi, hárþurrku og svo framvegis. Svíturnar og fjölskylduherbergin eru á tveimur hæðum, svefnherbergin eru uppi en rúmgóð setustofa á neðri hæð. Einnig er boðið uppá reyklaus herbergi. Bílageymsla hótelsins stendur gestum okkar til boða.

Á hótelinu eru tveir góðir veitingastaðir og boðið er uppá morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni. Okkar rómaði hótelbar er að sjálfsögðu opinn á hverju kvöldi. Margir af áhugaverðustu stöðum borgarinnar eru í næsta nágrenni við hótelið og ýmis söfn innan seilingar.

 

 Samningurinn er þó bundinn við vetrartímann þ.e. frá  1.október- 30.apríl ár hvert.

Félögum er bent á að panta miða hjá  Ástu Dóru í síma 433-6900 með viku fyrirvara sem hún svo sendir til ykkar í pósti eftir að greiðsla hefur farið fram og félagsmaður afhendir við innritun. Félagsmenn sjá sjálfir um að panta gistingu á hótelunum.

 

 

 

 
Hótelmiðar á Flughótel Keflavík og Hótel Loftleiðir í Reykjavík Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
 

Samningur við Flughótel Keflavíkur og Loftleiði!

Félagsmönnum gefst nú kostur á að kaupa hótelmiða í gegnum félagið á Flughótel Keflavíkur og  á Hótel Loftleiðum, Reykjavík. 

 Hótelin eru mjög vinsæl, glæsileg og með fyrsta flokks þjónustu. Tilvalinn staður til að byrja fríið á eða enda. Viðskiptavinum býðst að geyma bifreiðar sínar á hótelinu í allt að 3 vikur að kostnaðarlausu.  Hótelið í Keflavík sér um flutning uppá flugvöllinn.

Samningurinn er þó bundinn við vetrartímann þ.e. frá  1.október- 30.apríl ár hvert.

Félögum er bent á að panta miða hjá  Ástu Dóru í síma 433-6900 með viku fyrirvara sem hún svo sendir til ykkar í pósti eftir að greiðsla hefur farið fram og félagsmaður afhendir við innritun. Félagsmenn sjá sjálfir um að panta gistingu á hótelunum.