logo

SDS - Úthlutunar- og vinnureglur Starfsmenntasjóðs SDS
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Sjóðfélagi sem hefur verið félagi í a.m.k. 6 mánuði af s.l. 24 mánuðum
fær greiddan styrk

1.   

Umsækjandi verður að vera í starfi og greiðandi í SDS, bæði þegar hann sækir um styrkinn og þegar hann notar hann, nema styrkurinn varði endurhæfingu, þar sem staða umsækjanda hefur verið lögð niður.

2.   

Styrkveiting skal að öllu jöfnu vera bundin námi/námskeiðum sem nýtist sjóðsfélaga í sínu starfi.

3.   

Að styrkupphæð verði ákvörðuð með tilliti til sannanlegs útlags kostnaðar umsækjanda við námið. Tekið verði tillit til ferða-og upphaldkostnaðar, svo fremi stjórnin telji þennan kostnað ekki ofmetinn eða af einhverjum ástæðum óþarflega/óeðlilega háan, í því sambandi skal tekið mið af ákvörðun Ríkisskattstjóra um dagpeninga vegna gistingar- og fæðiskostnaðar á ferðalögum innanlands. Varðandi ferðakostnað, skal miðað við fargjald sérleyfisbifreiða. Einnig skal stjórnin, áður en samþykkur styrkur er greiddur út, afla sér upplýsinga um og taka tillit til þess hvort launagreiðandi, hefur veitt umsækjanda styrk til náms sem þegar hefur verið styrkt að fullu af einhverjum öðrum aðilum.

4.  

Hver umsækjandi/félagsmaður í SDS fái aldrei hærri styrk úr sjóðnum en nemur hámarsstyrk, þ.e. 65.000,-kr., einu sinni á hverjum tveimur árum. Stjórnin haldi nákvæma skrá yfir styrkveitingar og styrkþega.

5.  

Greiddur verður helmingur af heildarkostnaði umsækjanda, (sbr. 1. gr.) við nám, námsstefnur, ráðstefnur eða sambærilega þekkingaröflun sem tengja má starfi hans og flokka má undir stafs- eða endurmenntun, þó aldrei meira en 65.000- fyrir hvert námskeið. Tilvísun á grein 3.

6.   

Öll námskeið sem kosta 10.000 kr. eða minna greiðast að fullu svo fremi sem sjóðsfélagi hefur ekki fullnýtt sín réttindi.

7.  

 Þeir sem stunda réttindanám (þar með talið fjarnám ýmiskonar) í fjölbrautar- eða öðrum framhaldsskólum og skólum á háskólastigi, á Íslandi, fái 40.000,- kr. styrk úr sjóðunum fyrir hverja námsönn sem þeir ljúka, svo fremi námið tengist því sem umsækjandi starfar við, viðkomandi eigi þá ekki rétt á styrk úr sjóðnum eftir það í jafn mörg ár og réttindanámið tekur.
Dæmi: fjarnám tekur 4 ár, styrkþegi á þá ekki rétt á styrk úr starfsmenntunarsjóði í 4 ár eftir á náminu lýkur.

8.   

Stjórnin metur svo hverju sinni allar umsóknir um styrk sem eru undantekning frá því sem hér er upp talið, t.d. um þátttöku í námskeiðshaldi og námi eða námskeiðum erlendis. Styrkur til námskeiðahalds erlendis er einungis veittur á þriggja ára fresti og er þá tekið fullt tillit til styrksréttinda umsækjanda hvað áður greiddum styrkjum á 2.ára tímabili varðar. Um framkvæmd á greiðslum úr sjóðnum er vísað til 7. greinar í Reglugerðar fyrir stafsmenntunarsjóð SDS.

 

Reglur þessar taki gildi frá og með 1. október 2007 og getur stjórn sjóðsins breytt þeim án sérstaks fyrirvara ef þörf þykir.

Tillaga lögð fram á fundi stjórnar Starfsmenntunarsjóðs SDS og samþykkt samhljóða.

 

Helga Hafsteinsdóttir,

formaður sjóðsstjórnar