Markmið sjóðsins:
Sjóðurinn styrkir fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum. Sjóðurinn greiðir einnig bætur til sjóðfélaga í slysa- og veikindatilfellum eftir því sem nánar er mælt fyrir í úthlutunarreglum sjóðsins.
Hverjir eiga rétt á styrk úr sjóðnum?
Réttur sjóðfélaga til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið vegna þeirra í sjóðinn í a.m.k. 6 mánuði fyrir styrkveitingu. Sjá lista yfir aðildarfélög.
Hvernig sæki ég um hjá sjóðnum?
Umsókn um styrk skal gerð á til þess gerðum umsóknareyðublöðum. Umsókn skal skilað til skrifstofu Styrktarsjóðs BSRB, Grettisgötu 89 (1. hæð), 105 Reykjavík ásamt tilskyldum gögnum.
Afgreiðsla styrkja:
Umsókn skal hafa borist skrifstofu sjóðsins eða hafa verið póstlögð áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því að réttur til greiðslu stofnaðist. Umsókn skal skilað inn fyrir 15. hvers mánaðar. Að jafnaði er greitt úr síðasta dag hvers mánaðar eða næsta virka dag á eftir.
Gott að vita:
Réttur sjóðfélaga er bundinn við aðild að sjóðnum líkt og reglur sjóðsins kveða á um. Sjóðfélagar eiga rétt á styrk úr sjóðnum í 6 mánuði eftir að þeir hætta störfum.Starfsmenn sjóðsins hafa heimild til að endursenda umsóknir ef gögn fullnægja ekki reglum sjóðstjórnar.
Hafa samband:
Hægt er að hringja og fá nánari upplýsingar um starfsemi sjóðsins í síma 525-8380 eða senda inn fyrirspurn í tölvupósti á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Allar umsóknir eru trúnaðarmál.