logo

Aðalfundur SDS 2007
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Aðalfundur Starfsmannafélags Dala og Snæfellsnessýsluhaldinn í Dalabúð, Búðardal laugardaginn 14. apríl 2007.

 

Stjórn SDSDagskrá:

 

  1. Kosning fundarstjóra og ritara.

Tillaga kom fram um Dóru Aðalsteinsdóttur sem fundarstjóra og Írisi H. Sigurbjörnsdóttur sem fundarritara. Samþykkt með lófataki. Formaður afhenti fundarstjóra fundarstjórn.

 

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.

Formaður, Helga Hafsteinsdóttir, hóf skýrslu stjórnar á því að óska félagsmönnum til hamingju með 20 ára afmæli félagsins 8. mars sl. og að því loknu flutt formaður skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár. Fundarstjóri gaf orðið laust um skýrslu stjórnar.

 

  1. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.

Gjaldkeri fór yfir reikninga félagsins. Fundarstjóri gaf orðið laust um reikninga félagsins. Reikningar bornir upp til samþykktar og samþykktir samhljóða.  

 

  1. Skýrsla orlofsnefndar.

Formaður flutti skýrslu orlofsnefndar í fjarveru formanns orlofsnefndar. Formaður gaf orðið laust um skýrslu orlofsnefndar.

 

  1. Kosning meðstjórnenda og varamanna í stjórn.

Samkvæmt ferli félagsins skal kjósa núna tvo í stjórn. Úr stjórn hverfa nú Magnína Kristjánsdóttir og Íris H. Sigurbjörnsdóttir.  Tillaga uppstillingarnefndar er um Kristínu Ólafsdóttur, Dalabyggð og Önnu Sigríði Guðmundsdóttur, Stykkishólmi og til vara um  Steinunni I. Magnúsdóttur, Stykkishólmi. Tillagan samþykkt samhljóða með lófataki.

 

  1. Kosning skoðunarmanna og tveggja til vara:

Tillaga uppstillingarnefndar:

Bryndís Theódórsdóttir, Grundarfirði og Víví Kristóbertsdóttir, Búðardal og til vara:

Guðmundur Andrésson, Stykkishólmi og Sigurður Reynir Gunnarsson, Hellissandi. Samþykkt með lófataki.

 

  1. Lögð fram tillaga að breytingu á reglugerð Starfsmenntunarsjóðs SDS.
    1. Formaður greindi frá tillögu að breytingu á reglugerð um starfsmenntunarsjóð SDS en tillagan hefur verið samþykkt í öllum sveitarfélögunum.   
    2. Fljótlega að afloknum aðalfundi mun stjórn SDS skipa nýja stjórn starfsmenntunarsjóðs og mun stjórnin verða skipuð einum fulltrúa frá hverjum þéttbýlisstað af Snæfellsnesi.

Tillagan borin upp til samþykktar og samþykkt samhljóða.

 

  1. Önnur mál.
    1. Fundarstjóri gaf orðið laust fyrir fyrirspurnir.

 

  1.  
    1. Ábending barst um 8. grein stjórnar starfsmenntunarsjóðs varðandi endurskoðendur félagsins.

 

  1.  
    1. Fyrirspurn kom fram um starfsmatið hvort að mörg mál séu í gangi. Formaður svaraði fyrirspurninni á þann veg að það gengur hægt með málin.

 

  1.  
    1. Formaður þakkaði að lokum fráfarandi stjórnarmeðlimum fyrir samstarfið á liðnum árum. Guðmunda Wium lagði til að fólk risi úr sætum og klappaði fyrir fráfarandi stjórnarmönnum.

 

  1.  
    1. Fráfarandi stjórnarmenn þökkuðu jafnframt fyrir samstarfið á liðnum árum.

 

Að þessu loknu sagði Helga Hafsteinsdóttir fundi slitið og þakkaði fundargestum fyrir komuna og tilkynnti að matur yrði á borð borinn að afloknum fundi.

 

Að loknum fundi var boðið uppá þriggja rétta kvöldverð, skemmtidagskrá og dans .