Félagslög:
I kafli.
Nafn félagsins og hlutverk.
1.grein.
Félagið heitir Starfsmannafélag Dala og Snæfellsnessýslu, skammstafað SDS, og er heimili þess og varnaþing heimili formanns á viðkomandi tíma.
2.grein.
Félagið er stéttarfélag starfsmanna sveitar og bæjarfélaga í Dala- og Snæfellsnessýslu, og eftir því sem við getur átt, annarra er taka laun eftir samningum sem SDS hefur gert við sveitar og bæjarfélög og aðra opinbera aðila.
Hlutverk félagsins er:
a. að fara með umboð félagsmanna við gerð kjarasamninga og við aðrar sameiginlegar ákvarðanir allra félagsmanna.
b. að gæta réttinda og skyldna félagsmanna í öllu því sem varðar laun, önnur kjör og starfréttindi hver konar. Það kemur að öllu leyti opinberlega fram fyrir hönd félagsmanna, í samræmi við lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
c. að starfa að öðrum þeim málum sem að mati stjórnar mega verða félagsmönnum til heilla og ánægju.
d. að efla samvinnu með öllum félagsmönnum og öðru launafólki.
II kafli.
Félagsaðild.
3.grein
Rétt til inngöngu í félagið hafa allir þeir opinberir starfsmenn sem taka laun samkvæmt kjarasamningi milli þess og sveitar og bæjarfélaga, fjármálaráðuneytis, eða annarra þeirra sem falið hafa þessum aðilum samningsumboð fyrir sína hönd. Ennfremur geta starfmenn sjálfseignastofnanna í lögsagnarumdæmi Dala og Snæfellsnessýslu öðlast félagsréttindi, ef þær stofnanir vinna í almenningsþágu, að mati félagsstjórnar.
4.grein.
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg tilkynning til stjórnar og öðlast hún gildi þegar liðnir eru þrír mánuðir frá því að tilkynning berst stjórn félagsins, enda sé félagsmaður þá skuldlaus við félagið. Úrsögn öðlast þó ekki gildi eftir að ákvörðun um verkfall hefur verið tekin og meðan á verkfalli stendur, heldur frestast gildistaka hennar þar til verkfalli lýkur.
5.grein.
Halda skal aukaskrá yfir þá sem ekki eru félagsmenn, en greiða gjald til félagsins skv.2.mgr.7.gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna og hafa tilkynnt það skriflega að þeir óski ekki eftir að vera félagsmenn. Þeir sem á aukaskrá eru, njóta ekki atkvæðisréttar né annarra félagsréttinda svo sem aðildar að sjóðum félagsins, en taka laun eftir kjarasamningi félagsins og njóta þjónustu samkvæmt honum.
Einnig skal sá sem verður atvinnulaus, þegar starfi innan samningssviðs félagins lýkur, halda félagsréttindum þann tíma sem atvinnuleysi hans varir. Atvinnulausir greiði félagsgjald, en stjórn félagsins er heimilt að fella það niður að hluta eða öllu leyti.
III.Kafli.
Nefndir.
12.grein.
Stjórn skipar í uppstillinganefnd þrjá félagsmenn og einn til vara. Nefndin skal annast tilnefningar til kjörs stjórnar, endurskoðenda og annarra nefnda. Kosning skal vera bundin framboðslista og vera í samræmi við 6.gr. þessara laga.
Stjórnin leggur fram samþykktan lista uppstillinganefndar þremur vikum fyrir aðalfund.
13.grein.
Stjórnin skipar í orlofsnefnd fimm félagsmenn og tvo til vara til þriggja ára í senn.
Nefndin skal hafa umsjón með orlofsmálum félagsins.
14.grein.
Stjórnin skipar í lagabreytinganefnd þrjá félagsmenn og einn til vara, til þriggja ára í senn.
Nefndin skal sjá um endurskoðun á lögum félagsins.
IV.Kafli.
Fundir
15.grein.
Félagsfundi skal boða með minnst tveggja daga fyrirvara, nema brýn nauðsyn beri til annars að dómi stjórnar sem boðar til fundarins. Auglýsa skal fundinn á vinnustöðum og í fjölmiðlum eða á annan hátt. Jafnan skal tilgreina fundarefni í fundarboðinu. Takist ekki að ljúka fundarstörfum á einum fundi, skal boða til framhaldsfundar svo fljótt sem kostur er og eigi síðar en innan sjö daga. Sé boðað til fundar samkvæmt lögum þessum telst hann löglegur.
Félagsmenn geta krafist þess að fundur verði haldinn í félaginu og er stjórninni skylt að taka það til greina, ef 1/10 hluti félagsmanna krefst þess og tilgreinir fundarefni.
16.grein.
Aðalfundur skal auglýsa með tveggja vikna fyrirvara á vinnustöðum eða í fjölmiðlum,
eða á annan hátt.
Jafnframt skal auglýsa eftir öðrum listum til stjórnar og fulltrúaráðskjörs og skal hann hafa borist stjórn minnst viku fyrir aðalfund. Rétt til að bera fram lista við kjör stjórnar og fulltrúaráðs hefur hver fullgildur félagmaður, þó er framboðslisti ekki löglegur nema hann sé studdur af minnst 10 fullgildum félagmönnum.
Aðalfundur skal haldinn fyrir maílok ár hvert. Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum á einum fundi, skal boða til framhaldsaðalfundar eigi síðar en innan 20 daga. Heimild er að boða til aukaaðalfundar ef stjórn félagsins telur ástæðu til. Skal það þá gert með minnst tíu daga fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
a. kosning fundarstjóra og ritara eftir tilnefningu stjórnar.
b. skýrsla stjórnar um starfssemi félagsins á liðnu starfstímabili.
c. endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
d. skýrsla orlofsnefndar.
e. tillögur stjórnar um félagsgjöld, gjald úr orlofssjóði til rekstara félagsins og aðrar þær tillögur sem stjórnin kann að leggja fram.
f. tillögur til lagabreytinga sem stjórnin eða aðrir hafa lagt fram.
g. kosning formanns.
h. kosning meðstjórnenda og varamanna í stjórn.
i. kosning tveggja endurskoðenda og tvo til vara.
j. kosning fulltrúa á þing BSRB þriðja hvert ár.
k. önnur mál sem getið er sérstaklega í fundarboði, s.s. kjaramál eða annað.
l. önnur mál.
17.grein.
Fundum skal stjórnað samkvæmt fundarsköpum BSRB.
Afl atkvæða ræður, en mál fellur á jöfnum atkvæðum.
Falli atkvæði jöfn í kosningu gildir hlutkestisreglan.
V.kafli.
Fjármál
18.grein.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Til þess að standa straum af kostnaði við starfsemi félagsins greiða félagmenn mánaðarlega félagsgjald til þess samkvæmt ákvörðun aðalfundar og skal miðað við hundraðshluta allra launa. Í félagsgjaldinu er innifalið árgjald til BSRB
samkvæmt ákvörðun bandalagsins.
Trúnaðarmenn
20.grein.
Stjórn félagsins skal sjá um að félagsmenn kjósi trúnaðarmenn á vinnustöðum samkvæmt því sem heimilað er í lögum nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna og í samkomulagi um trúnaðarmenn við vinnuveitendur.
VIII.kafli.
Verkföll og aðrar vinnudeilur
21.grein.
Stjórn fjallar um tillögur að boðun til verkfalls þeirra félagmanna sem rétt hafa til þátttöku í þeim. Skal ákvörðun um verkfall tekin með þeim hætti sem mælt er fyrir í lögum nr.94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
IX.kafli.
Lagabreytingar
22.grein.
Lögum þessum verður ekki breytt nema á aðalfundi. Heimilt er þó á aðalfundi að ákveða að vísa þeim tillögum til lagabreytinga, sem mikla þýðingu hafa, til samþykktar eða synjunar félagsins fjórtán dögum fyrir aðalfund. Til þess að lagabreytingar öðlist gildi þarf að samþykkja þær með 2/3 hlutum greiddra atkvæða. ( ákvæði 23.gr. laga þessara verður ekki breytt nema með samþykkt tveggja aðalfunda.)
X.kafli.
Slit félagsins
23.grein.
Leysist félagið upp eða verði lagt niður, þarfnast sá gjörningur tveggja aðalfundarsamþykkta og staðfestingar 2/3 hluta greiddra atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu. Fyrir fyrri aðalfundinn skal leggja fram tillögu um hvað verði um eignir félagsins er því er slitið.
XI.kafli.
Gildistími
24.grein.
Lögin öðlast gildi við samþykkt þeirra á aðalfundi. Kjósa skal á aðalfundi 1999 tvo meðstjórnendur, árið 2000 tvo, og 2001 skal kjósa formann, síðan árlega eftir þessari röð.
Grundarfjörður 21.maí 2007